top of page

 Leikhópurinn skellibjalla

Leikhópurinn Skellibjalla er íslenskur sviðslistahópur sem skapar lifandi og ævintýralegar sýningar fyrir börn og fjölskyldur.
Hópurinn sameinar leiklist, tónlist og klassískan söng með það að markmiði að skapa vandaðar og aðgengilegar sviðslistir fyrir unga áhorfendur.

Fyrsta sýning hópsins, Pétur Pan og týndi fjársjóðurinn, var frumsýnd á Óperudögum og hefur síðan verið flutt fyrir fjölda grunnskólabarna á höfuðborgarsvæðinu.


​Næsta verk hópsins er Jólaævintýri Skröggs í Salnum í Kópavogi í desember 2026.

Jólaævintýri Skröggs

Jólaævintýri Skröggs: ný 40 mínútna leikgerð Níels Thibaud Girerd, byggða á hinni sígildu  Jólasögu, A Christmas Carol  eftir Charles Dickens í Kópavogi. Sagan fjallar um hinn geðvonda og kaldlynda Ebenezer Skrúd sem lætur sér fátt um finnast um aðra og hefur óbeit á jólahátíðinni.

Á aðfangadagskvöld, vitjar hans draugur fyrrum viðskiptafélaga síns í draumi ásamt þremur draugum  sem spegla líf hans. þ.e. draugum fortíðar, nútíðar og framtíðar. Einmannaleg og napurleg ásýnd þess sem blasir við honum við þessa vitjun fær hann til að taka stakkaskiptum. Hann vaknar á jóladag sem nýr maður, fullur auðmýktar, góðmennsku, örlætis og væntumþykju  til náungans.
 

Á aðeins 40 mínútum lifnar saga Skrúds við í hraðri, litríkri  og söngríkri leiksýningu þar sem örlæti, gleði og kraftaverk jólanna eru í forgrunni. Sýningin er hugsuð fyrir börn og fjölskyldur og byggir á einfaldri umgjörð, sterkum leikhópi og mikilli leikgleði – lítil sýning að umfangi en stór að upplifun. 
​Tónlistarstjóri er Einar Bjartur Egilsson.

814713751_2144738276114512_9153509924978161174_n.png

​Sýningar

Laugardagur 05.12.26
kl. 12:00

Jólaævintýri Skröggs

Salurinn í Kópavogi
Fimmtudagur 10.12.26
kl. 19:00

Jólaævintýri Skröggs

Salurinn í Kópavogi
Föstudagur 11.12.26
kl. 19:00

Jólaævintýri Skröggs

Salurinn í Kópavogi

Pétur Pan & týndi fjársjóðurinn

Ungum áhorfendum, á aldrinum 5- 9 ára, er boðið upp á hjartnæma leikhúsupplifun þar sem fjallað er um viðfangsefni eins og t.d. vináttu, hugrekki, auðmýkt og mikilvægi þess að standa með sjálfum sér og öðrum. Markmiðið er einnig að hvetja börn til að virkja ímyndunaraflið, að skrifa sjálf sögur og þora að láta sig dreyma stórt.

​

Leikhópurinn Skellibjalla setur á svið leikverkið Pétur Pan og týndi fjársjóðurinn sem byggir á hugmyndum og persónum úr sígilda ævintýrinu eftir J. M. Barrie.

Sagan er samofin við kraftmikla tónlist, m.a. eftir Bernstein, Ravel, Chopin, sem fær nýtt líf með nýjum íslenskum þýðingum Veru Hjördísar.

​

Leikhópurinn skellibjalla frumfluttu  Pétur Pan, sem sýnd var við góðar undirtektir í Norðurljósum í Hörpu á Óperudögum 2025. Verkið var jafnframt flutt fyrir um 650 nemendur í 1.–3. bekk í grunnskólum Garðabæjar og fyrir  grunnskóla Reykjavíkur í Hlöðunni í Gufunesi, Gerðubergi og Ráðhúsi Reykjavíkur.

548695873_18416401582106970_391452748641987677_n.jpg

Leikhópurinn Skellibjalla

Screenshot 2026-09-28 at 15.18.32.png

Bryndís Guðjónsdóttir

Söngkona

Níels.jpg

Níels Thibaud Girerd

Leikari & Leikstjóri

Screenshot 2026-09-28 at 15.07.06.png

Oddur Arnþór Jónsson

Söngvari

438330153_10229988721636639_4050312092067954744_n.jpg

Vera Hjördís Matsdóttir

Söngkona

Fyrirspurnir

Hægt er að senda inn fyrirspurnir á leikhopurinnskellibjalla@gmail.com
eða með því að fylla út formið hér að neðan


bottom of page