top of page
Níels Thibaud Girerd

Níels  Thibaud Girerd

Níels Thibaud Girerd er íslensk-franskur leikari, leikstjóri og fjölmiðlamaður. Hann lauk BA-gráðu í leiklist frá Sviðslistadeild Listaháskóla Íslands árið 2021 og diplómanámi í óperustjórnun á vegum Opera Europa árið 2022. Frá útskrift hefur Níels tekist á við fjölbreytt hlutverk á sviði, meðal annars Birtíng í Birtíng eftir Voltaire, Peleif í Ástarseyði Bergamólíó Kroppinbaks, Smidda í Jónsmessunæturdraumi, Napóleon í Níels er Napóleon, Benoît í La bohème, Pétur Pan í Pétri Pan, Andreij í Þremur systrum og Hallgrím Pétursson í Jólunum hans Hallgríms. Hann hefur jafnframt komið reglulega fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Á árunum 2015–2022 starfaði Níels sem sýningarstjóri, verkefnastjóri og aðstoðarleikstjóri við Íslensku óperuna.  Sem leikstjóri hefur hann meðal annars leikstýrt Brothers eftir Daníel Bjarnason, Rabbi Rafmagnsheila, sem tilnefnd var til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2023, Hrafntinnu og Örlagaþráðum. Meðal annarra leikstjórnarverkefna hans eru Syngjandi í rigningunni, Mary Poppins, West Side Story, Chicago, Íslandsklukkan og Bugsy Malone, samstarfsverkefni Söngleikjadeildar Söngskólans í Reykjavík og Þjóðleikhússins. Níels hefur starfað við sjónvarp og útvarp frá árinu 2010 og komið að gerð yfir 100 þátta og innslaga fyrir íslenska fjölmiðla. Hann vinnur nú sem höfundur og framleiðandi að heimildarþáttaröðinni Bravó Wagner fyrir RÚV, sem fjallar um Richard Wagner, Bayreuth-hátíðina og 150 ára sögu hennar. Níels hefur einnig leikið í sjónvarpi og kvikmyndum, meðal annars í bandarísku kvikmyndinni The Finnish Line, Dagbók lögreglunnar, Krakkaskaupinu, Hæ Gosi og Stundinni okkar.

Vera Hjördís Matsdóttir

Hin hálf íslenska, hálf sænska sópransöngkona Vera Hjördís Matsdóttir lauk meistaragráðu í klassískum söng við Konunglega Tónlistarháskóla Í Den Haag árið 2024 undir handleiðslu Frans Fiselier. Þar áður lauk hún bakkalárgráðu við Listaháskóla Íslands vorið 2020. Kennarar hennar voru Hanna Dóra Sturludóttir, Kristinn Sigmundsson, Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Þóra Einarsdóttir. Við útskrift frá Listaháskólanum var Vera valin sem styrkhafi úr Styrktarsjóði Halldórs Hansen. Hún var einnig í hópi þeirra 16 afburða námsmanna sem hlutu námsstyrk frá Landsbankanum vorið 2023. Vera hlaut sérstök verðlaun í Vox Domini árið 2024 fyrir besta flutning á verki eftir tónskáld keppninnar sem það ár var Hildigunnur Rúnarsdóttir. Hún kom fram á Opernfest Prague í Smetana Hall í júlí 2023 ásamt Sinfóníuhljómsveit. Vera kemur reglulega fram sem einsöngvari hér á landi. Nýjustu dæmi telja þátttaka hennar í uppfærslu Kammeróperunnar á Brúðkaupi Fígarós í Borgarleikhúsinu í hlutverki Barbarínu en einnig þátttaka hennar í óperu eftir Þórunni Guðmundsdóttur, Hliðarspor. Einnig hlaut Vera einsöngstónleika á tónleikaröðinni Velkomin heim í Hörpu ásamt Einari Bjarti Egilssyni píanóleikara. Vera fór með aðalhlutverkið í nýrri íslenskri óperu eftir Sigrúnu Gyðu Sveinsdóttur, SKJÓTA. Í maí mun Vera Hjördís gegna einsöngs hlutverki í flutningi á Petite Messe Solennelle eftir Rossini í Salnum í Kópavogi undir stjórn Stefan Sand. Árið 2026 syngur Vera í tveimur sýningum eftir Þórunni Guðmundsdóttur í Tjarnarbíói, annars vegar í verðlaunasýningunni Sæmundur Fróði en einnig í barnasýningunni Mikið fyrir börn.

Vera Hjördís Matsdóttir
Oddur Arnþór Jónsson

Oddur Arnþór Jónsson

Oddur Arnþór Jónsson hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2018 sem söngvari ársins fyrir hlutverk Michaels í Brothers eftir Daníel Bjarnason á Listahátíð 2018. Hann var útnefndur Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2014 fyrir Rodrigo í Don Carlo.
Oddur lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík og stundaði framhaldsnám í óperu- og ljóðasöng við Mozarteum háskólann í Salzburg.
Við Íslensku óperuna hefur Oddur sungið titilhlutverkin í Don Giovanni og í Rakaranum frá Sevilla, Rodrigo í Don Carlo, Faðirinn í Hans og Grétu, Ned Keene í Peter Grimes, Greifann í Brúðkaupi Fígarós og Barone Douphol í La traviata. Önnur óperuhlutverk sem hann hefur sungið eru Wolfram í Tannhäuser og Kurwenal í Tristan und Isolde(Óperuhúsið í Chemnitz, Þýskalandi), Schaunard í La bohème (Reisopera, Hollandi) og Silvio í Pagliacci (Theater Ulm),
Sem ljóðasöngvari hefur hann flutt Das Lied von der Erdeeftir Gustav Mahler í Garnier-óperunni í París, Vetrarferðinaog Schwanengesang á Schubert hátíðinni í Vilabertran á Spáni og haldið ljóðatónleika á Britten-Pears hátiðinni og á Oxford Lieder Festival á Englandi. Hann hefur sungið bassahlutverkin í Jólaóratóríunni, H-moll messunni, Jóhannesar- og Mattheusarpassíunni eftir Bach, Messíasi og Solomon eftir Händel, Requiem og Krýningarmessunni eftir Mozart, Requiem eftir Faurè, Messa di gloria eftir Puccini, Petite Messe Solennelle eftir Rossini, Te Deum eftir Charpentier og Mysterium eftir Hafliða Hallgrímsson.

Bryndís Guðjónsdóttir

Sópransöngkonan Bryndís Guðjónsdóttir lauk meistaraprófi í óperusöng árið 2021frá Mozarteum tónlistarháskólanum í Salzburg, þar sem hún útskrifaðist summa cum laude undir handleiðslu prófessors Michèle Crider. Áður en hún flutti til Salzburg stundaði hún nám við Listaháskóla Íslands hjá Þóru Einarsdóttur, Kristni Sigmundssyni og Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur. Bryndís hefur hlotið fjölda verðlauna, þar á meðal Grímuna - íslensku sviðslistaverðlaunin, árið 2025 fyrir hlutverk greifynjunnar í Brúðkaupi Fígarós frá uppfærslu Kammeróperunnar í Borgarleikhúsinu. Bryndís var einnig tilnefnd til Grímunnar fyrir hlutverkið Musettu sem hún söng í uppfærslu Óðs af La Bohéme í Borgarleikhúsinu.
Bryndís var tilnefnd sem söngvari ársins í flokknum sígildri- og samtímatónlist á íslensku tónlistarverðlaununum 2024 og 2026.

Hún bar sigur úr býtum í keppninni Ungir einleikarar hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2018 og hlaut einnig fyrstu verðlaun  í Riccardo Zandonai-keppninni á Ítalíuárið 2021 og í Certamen Nuevas Voces Ciudad de Sevilla á Spáni árið 2022.

Hún hefur komið fram í óperuhúsum og tónleikasölum víða um Evrópu, meðal annars Semperoper Dresden, Aalto Theater Essen, Dortmund, Darmstadt, Chemnitz, Kiel, Kassel, Madrid, Nürnberg, Munich, Martina Franca, Salzburg, Stuttgart, Sevilla, Stralsund, Prag, Reykjavík, Róm og Vilníus.

Bryndís hefur komið margoft fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands, m.a. á tónleikum þeirra Ungir einleikarar 2018, Níundu Sinfóníu Beethoven 2019 ásamt Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands,  Jólatónleikum Sinfóníunnar 2021, Skólatónleikum um Töfraflautuna fyrir börn 2023, Ad Genua eftir Önnu Þorvaldsdóttur 2023, Vínartónleikum 2025, 8. Sinfóníu Gustavs Mahler í maí 2026 , Klassíkinni okkar í ágúst 2026 og í  afmælisfagnaði Mozarts í Litla tónsprotanum 2026.


Bryndís var styrkþegi Tónlistarsjóðs Rótarý á Íslandi, Söngmenntasjóðs Marínós Péturssonar, Halldórs Hansen, Ingjaldssjóðs, Richard Wagners námsstyrkins og Gianna Szel í Austurríki.

Bryndís guðjónsdóttir
bottom of page