Jólaævintýri Skröggs
Jólaævintýri Skröggs: ný 40 mínútna leikgerð Níels Thibaud Girerd, byggða á hinni sígildu Jólasögu, A Christmas Carol eftir Charles Dickens í Kópavogi. Sagan fjallar um hinn geðvonda og kaldlynda Ebenezer Skrúd sem lætur sér fátt um finnast um aðra og hefur óbeit á jólahátíðinni.
Á aðfangadagskvöld, vitjar hans draugur fyrrum viðskiptafélaga síns í draumi ásamt þremur draugum sem spegla líf hans. þ.e. draugum fortíðar, nútíðar og framtíðar. Einmannaleg og napurleg ásýnd þess sem blasir við honum við þessa vitjun fær hann til að taka stakkaskiptum. Hann vaknar á jóladag sem nýr maður, fullur auðmýktar, góðmennsku, örlætis og væntumþykju til náungans.
Á aðeins 40 mínútum lifnar saga Skrúds við í hraðri, litríkri og söngríkri leiksýningu þar sem örlæti, gleði og kraftaverk jólanna eru í forgrunni. Sýningin er hugsuð fyrir börn og fjölskyldur og byggir á einfaldri umgjörð, sterkum leikhópi og mikilli leikgleði – lítil sýning að umfangi en stór að upplifun.
Tónlistarstjóri er Einar Bjartur Egilsson.

